Nýr bíll í flotann.
Vörumiðlun fékk á dögunum nýjan og öflugan Volvo FH16 540Hp dráttarbíl frá Brimborg með I-Shift sjálfskiptingu og er bíllinn allur hinn glæsilegasti.
Mikill búnaður
Meðal annars er hann með svefnhúsi, loftpúðafjörun allan hringinn og vikt er við hvern öxul. Vindskeið er á toppi og niður með hliðum ásamt klæðningu á grind milli hjóla. Þá er bíllinn búinn Xennon aðalljósum ásamt Xennon kösturum á toppi og tveimur gulum blikkljósum. Að innan eru sæti leðurklædd með upphitun, ökumannssæti er með loftfjöðrun, hurðaspjöld eru leðurklæddauk auk þess sem bíllinn er með loftkælingu og tímastilltri olíumiðstöð. Kælivatn vélarinnar er hitað svo gangsetning í frosti og kulda fari betur með vélina.
Bíllinn sem Einari var afhentur er mjög vel útbúinn. Helst ber að nefna Globetrotter hús sem að innan er búið einni koju og hillum fyrir ofan kojuna með ísskáp. GSM-sími er innbyggður og er stjórnbúnaður fyrir hann í stýri, hátalarar og hljóðnemi í ökumanssæti auk þess sem símtól er í mælaborði. Rauð næturljós eru inní húsi auk sjálfvirkrar miðstöðvar með loftkælingu (A/C).
I-Shift sjálfskipting og Michelin dekk.
540 hestafla 16 lítra vélin togar 3100Nm en jafnframt er bíllinn búinn VEB+ mótorbremsu og retarder sem gefa yfir 1100 bremsuhestöfl. Gírskiptingin er hin byltingarkennda I-Shift sjálfskipting en ennfremur má í bílnum finna nafdrif og diskabremsur. Hann er á Michelin dekkjum ásamt því að vera með klæðningu ofan á grind





